Einkunnarorð MultiTask eru “Allt er mögulegt”.
MultiTask ehf býður viðskiptavinum sínum persónulega þjónustu.
Mikil og breið reynsla okkar nýtist viðskiptavinum okkar til hagræðingar.
Fljót gæðaþjónusta, vandaður frágangur og ráðgjöf til að velja réttan búnað, skilar sér á endanum sem hagstæðasta lausnin.
Við getum hjálpað þér með allt sem snýr að tæknimálum. Val á réttum búnaði, aðstoða við heildarlausnir á fjarskipta og tölvubúnaði svo fátt eitt sé nefnt.
MultiTask er með til á lager ýmsan tölvu og myndavélabúnað ásamt að eiga alltaf til það helsta sem snýr að útgerðum báta og skipa.
Við seljum og mælum aðeins með vörum og þjónustu sem við erum sjálf ánægð með.
MultiTask ehf var stofnað af Heimi Snæ Gylfasyni í byrjun árs 2008.
Reynsla og menntun á sviði margmiðlunar og rafeindavirkjunar fréttist fljótlega og voru verkefnin fljót að hlaðast á MultiTask ehf.
Sérverkefni bættust við sem kölluðu á frekari viðbót í fyrirtækið og hefur MultiTask hafið samstarf við aðra til að auka enn frekar getu okkar til að leysa hin ýmsu sérverkefni sem viðskiptavinir okkar treysta okkur fyrir.
2010 bættist svo persónuöryggi sjómanna við á lista okkar og höfum við mikla ástríðu fyrir frekari þróun og betrumbótum á þeim búnaði sem og þjálfun sem sjómenn þurfa þegar á þarf að halda. Sjókall og Sjógátt eru vörumerki okkar, þetta eru vörur sem eru hannaðar og framleiddar af MultiTask ehf í þágu sjómanna okkar til aukins öryggis og eftirlits á sjó.
MultiTask ehf Sími 477 1000
Við bjóðum upp á persónulega gæðaþjónustu.
Þú getur sent okkur línu gegnum fyrirspurnarformið, sent okkur tölvupóst eða hringt í okkur.
Netfang: multitask[hjá]multitask.is
Sími: 477 1000 | 651 9900
Við höfum mikla reynslu af uppsetningum og viðhaldi á tölvum og netkerfum. Sérstök sérhæfing hefur orðið hjá okkur í þráðlausum lausnum.
Við höfum sinnt verkefnum í stórum skipum, hótelum, skemmum og einnig utandyra þegar þarf að ná áreiðanlegu neti yfir langar vegalengdir.
Okkar vörur geta einnig hentað vel í öðrum greinum þar sem áreiðanleiki og veðurþol er mikilvægt.
Vinnur frá Neskaupstað, Heimir er stofnandi MultiTask og þróaði vöruna Sjókall með góðri aðstoð. Rafeindavirki, stundum rafvirki, tölvunörd, kennari, veiðimaður, faðir og almennur snillingur……sumir segja að hann sofi aldrei.
Vinnur frá Neskaupstað. Ingvi er rafvirkjanemi á loka metrum námsins og býr yfir góðu verkviti. Ungur og efnilegur rafvirki sem við berum gott traust til
Vinnur frá Neskaupstað. Sigurbjörn er okkar trausti rafeindavirki, sér um Sjókall, heyrnatól, talstöðvar, iðnvélar og annað sem þarf að rýna vel í og tryggja gott rekstraröryggi.
Verkefnum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni er stýrt af Patryk og sú reynsla og elja sem hann býr yfir sér til þess að verkefnin eru vönduð og afgreidd hratt og örugglega. Hér er vel menntaður og metnaðarfullur maður sem passar vel við markmið og gildi fyrirtækisins. Patryk hefur lokið ýmsu námi tengt faginu þar á meðal er iðnfræði frá HR með framúrskarandi árangri.
Einhverjar spurningar?
MultiTask ehf | kt: 5403081280 | S: 477 1000 | @: multitask[hja]multitask.is & bokhald[hja]multitask.is